laugardagur, 20. september 2008

Sumar --> Haust



Jæja, þá er sumarið búið! Já eða löngu búið. Er ekki alveg að standa í blogginu. Sagði eftir ljósanótt að ég ætlaði að segja frá sumrinu, en sú bloggfærsla hefur nú dregist aftur umm vegna anna í vinnu og skóla. Já þið lásuð rétt. Sveinbjörg Anna er byrjuð aftur í skóla. Ég legg stund á fjarnám frá Fjölbrautarskólanum í ármúla. Er í 2 áföngum Lan103 og Þýs 403. Það sem af er komið af vetrinum þessir 10 dagar. eru búnir að ganga rosalega vel.



~Sumarið~
~2008~


Sumarið var hreint æðislegt.


ég fór í sumarfrí frá vinnuni 14. júlí - 5 ágúst og á þeim dögum var margt brallað.


Ég byrjaði samt sumarið í Maí þegar að ég og ellen og sigurvin, skelltum okkur í sumarbústað í skorradal. mjög skemmtileg ferð til að þjóðstarta sumrinu.

Svo var bara unnið og notið veðurblíðunnar þar til 11. júlí.
þá var hoppað úr vinnuni og þá fór ég í Sumarbústaðinn hans afa með mömmu og pabba, árna og ömmu. kósýhelgi í faðmi fjölskyldunnar en aðaltilefnið var fjölskyldudagur Arna á Laugarvatni, og á Laugardagskvöldinu þá kom þórhallur og hans vinir og skemmtu gestum og gangandi.
Helgina eftir það var familíu hlegi aftur og þá fórum við norður og í þetta skipti -Árni Vigfús sem var í Vatnaskógi. Getum við aldrei verið heil fjölskylda saman? hehe... Helgin var fín í alla staði en á Akureyri þá voru Hjóladagar og svo skemmtilega vildi til að Elías var með Guðmund óskar og það var alveg æðislegt í Alla staði.
Verslunarmannahelgin 2008 stóð upp úr. Ég. Hrund og Svenni fórum á Akureyri og það var alveg stórskemmtileg helgi sem einkenndist af skemmtun út í eitt og svefnleysi. Vorum frá föstudegi til mánudags, kynntumst yndislegu fólki og skemmtum okkur hrikalega vel.
Á þriðjudeginum var byrjað að vinna eftir 3ja vikna sumarfrí...
en sumarið var þá aldeilis ekki búið.
Ó NEI!!
Það var skellt sér á Blómstrandi daga í hveragerði.
Menningarnótt
Ættamótið sem haldið var á Húsavík í tilefni 100. ára afmæli Afa þórhalls
helgina 29 - 31 ágúst. Æðisleg helgi. fórum í bátsferð, kirkjugarðinn og svo familíuskemmtun í Lækjarseli. Fór síðan með elíasi til akureyrar til þess að fara á skímó ball. Æðisleg helgi.
Ljósnótt lokar sumrinu, æðisleg ljósanótt, sem hefði mátt enda betur.
Mikið var um djamm líka í sumar, workað heldur betur tanið, guðný ragna fermdist, ófáar bíóferðir.
Endanleg niðurstaða á sumrinu er sú að Sumarið var Awsome!!!