mánudagur, 2. júní 2008

Dómur!

Manneskjan er eitt furðulegasta fyrirbærið.
Manneskjan er eitt stórt vandamál.
Manneskjan dæmir fólk og sér ekki að það sjálft hefur sömu vandamál af sömu tegund eða af bara allt annari tegund. Maður sér það ekki fyrr en manneskjan er farin frá manni hvað maður hefur dæmt hana mikið og endar svo með sömu vandamál á herðum sér. Ég er bara lifandi sönnun fyrir því hversu stórt vandamál manneskjan er. Ég dæmdi eina manneskju en tel það að ég hafi gert henni gott með því að dæma hana en stundum var það of mikið. Manneskjan vissi af því, því að allir í kringum hana sögðu það sama og ég sagði. Þeir sem að þekkja mig vita um hvað ég er að tala. Ég dæmdi þessa manneskju í gríð og erg ásamt öðru fólki. En aftur á móti hjálpaði ég henni rosalega mikið. vona ég. Maður dæmir manneskjuna um hluti sem núna eru að lenda á herðum mínum. Ég leit á þessa manneskju sem bestu vinkonu mína. og það er svo margt sem ég arf að segja, t.d biðja hana fyrirgefningar á því að dæma hana á hlutunum sem eru lentir á mínum herðum, ekki hennar vandamál heldur mín vandamál af sömu tegund, Nú er þessi manneskja farin og mig vantar svo að segja fyrirgefðu að ég hafi dæmt hana svona mikið. Ég veit að flestir sem ég þekki vilja gera það sama eða viljað hafa gert meira til þess að hjálpa henni.

-sveinbjörg-

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður dæmir alltaf manneskjur alveg sama hvernig og hvaða hátt sem er.. en stundum þarf maður að passa sig hvað maður segir þótt að sannleikurinn er sár en það er betra að fá hreinskilnina heldur en að vera særður því það er ekki gott betra að vera sár í smá stund heldur en forever... Og ég vill líka bara benda þer á eitt þessi manneskja sem að þú ert að tala um fyrirgefur þer alveg og er alveg örugglega sátt með þetta eins og þetta kom út því að þegar að þú hittir þessar manneskju þá eigið þið eftir að tala mikið saman og hun á eftir að fyrirgefa þer allt saman og hun veit líka að þú sért sár yfir þessu en hun getur bara ekki komið til þín því þú þarft að fara til hennar einn daginn.. Það er svo margt í þessu sem að maður fattar sutndum ekki en alla vega reyndu að átta þig á þessu því þessi manneskja fyrirgefur þer þetta einn daginn trúðu mer

Nafnlaus sagði...

Eg held ad tessi manneskja a ettir ad fyrirgefa ter astin min.. mer lyst vel a tetta hja ter :*
love'ya and miss'ya
Anna

Sveinbjörg Anna Karlsdóttir sagði...

Takk æðislega anna mín.... vissi það alveg innst inni ;* elska þig líka mest. sakna þín heavy ;*;*

Nafnlaus sagði...

Á ekki að fara að blogga elsku dúllan mín
Kv
mamma