miðvikudagur, 27. febrúar 2008

...


Á móti Sól - ég er til
sóldögg - svört sól
Eurobandið - This is my life



SVO EINFALT ER ÞAÐ!

Svinbjörg is out :)


föstudagur, 22. febrúar 2008

Sjæsah

[np: Á móti sól - sæt]

Söngvakeppni Evrópska Sjónvarpsstöðva er nú að fara að ganga í garð. Hátíð hjá sumum já. Alls ekki öllum en næstum því allri þjóðinni.
íslenska þjóðin er stórskrýtið fyrirbæri. Við erum svo rosalega samheldin, samt þekkjum við ekki manninn sem situr við hliðina á okkur í strætó.
Þegar að einhverjum gengur vel eins og t.d í handboltanum eða bara gengur vel á erlendri grundu þá er hann/hún allt í einu orðin “okkar”. Við erum aðeins of fljót að eigna okkur eitthvað. Tökum bara sem dæmi Magna “okkar” Ásgeirsson. Af því honum gekk vel í Rockstar Supernova þá varð hann allt í einu orðin “okkar” og svaka heimkoma fyrir hann í Smáralind þegar að hann kom heim. Ég meinaða Kiddi frændi hann er nú búinn að standa sig vel í dómgæslunni úti afhverju er hann ekki orðinn Kiddi “okkar”.

En talandi um Evróvísjón. Þá er ég rosa skotin í 2 lögum. Eurobandið með lagið This is my life og Hins vegar langiu með Merzedes club lagið ber það skemmtilega nafn ho ho ho we say hey hey hey.
En Ríkissjónvarpið fær klapp á bakið fyrir að leyfa lögunum að vera flutt á ensku í undankeppninni hér heima.
Eins og Páll Óskar “Guðfaðir Evróvísíón á Íslandinu kalda” sagði í morgun í Zúúber. Íslenska þjóðin hefur fengið lög og texta svo oft í bakið út af því að lagið er mikið flottara á íslensku heldur en það er á ensku. Tökum bara sem dæmi Silvía Nótt, Geðveikt catchy lag á íslensku en á ensku var það prump.

Annars var nú úrslitakeppnin að hefjast í Bandinu hans Bubba. Það er alltaf þannig í svona keppnum að þegar að þú keppir þá ertu rosalega heppin/n ef að þú átt stóra fjölskyldu og vinahóp, þá kemstu áfram því að allir kjósa þig.
Afhverju ekki bara ekki að kjósa þann sem að þú vilt úr þættinum. Mér finnst það mjög sniðugt að snúa bara dæminu við og kjósa út heldur en inn. Hvað finnst ykkur á ég að finna bubba í fjöru og segja honum þetta?

Blogger Out.
Peace Out.

mánudagur, 11. febrúar 2008

Helgin










Helgin var mjög skemmtileg. Ein af þessum skemmtilegum helgum sem standa uppúr.


Föstudagurinn fór mest í það að vera með tvöfaldan kjálka vegna endajaxlatökunnar á fimmtudeginum. Kíkti samt aðeins út. Því auðvitað þarf maður að ná sér í appelsínudjúsinn fyrir helginni. Ekki lætur maður nú eina tönn skemma það fyrir manni. Um kvöldið þá gerði ég ekkert. Tölvan og vont veður voru aðalmálin þetta kvöld.


svona var úm að lítast í rok(k)bænum keflavík

Laugardagurinn var nú mikið skárri. Hann var tekinn í það að sofa út. Farið svo á rúntinn með familíunni hef nú ekki gert það í mörg ár. En græddi þó ís :) Pabbi gamli! klikkar ekki þegar að kemur að rúntinum að bjóða manni upp á ís. Eftir ísferðina þá byrjaði heimasætan á bænum að elda. dugnaður í stelpunni. Þegar búið var að borða komu Éllen og Helena og Sigurvin á ná í mig og við gerðum okkur til. Því um kveldið þá var slegið upp heljarinnar djúsboði. Allir sátu á sömbli að allskyns djúsum. Tilefnið með allri þessari djúsþömbun var að Anna Rós mín frá USandA var komin á klakann. Við skelltum okkur niður í bæ um hálf 3 leitið. Nenni ekki að segja frá bænum alltaf það sama.

þetta er einungis smá sýnishorn af kvöldinu.


Sunnudagurinn einkenndist mikið af mönnu sem kenndir eru við timbur. Kikti samt aðeins út með ellen og sigurvin.

Helgin var æðisleg í allastaði.
Aðeins vika í matthildi svíann minn. Hlakka svo til :)


sætabrauðið er að koma á klakann

En allavega sveinbjörg kveður :)














miðvikudagur, 6. febrúar 2008

jaham

[now.playing: Westlife - Home]


Skítur




Að vera veik. Pestin er búin að vera að drepa mig núna þriðjudag og miðvikudag.
Hef ekki verið 2ja daga veik í mörg ár. nema þar síðasta föstudag. Fór þá á myndina cloverfield. og jáh ég var veik eftir hana. Alls ekki gott að henda í sig einu sveittum burger og svo fara á myndina. Mæli ekki með því.




Þegar að maður lendir í því að verða veikur þá yfirleitt uppgvötar maður 3-4 lög. Annaðhvort eru það lög sem að maður er ekki búin að heyra í mörg ár eða þau eru ný.
ég er búin að uppgvöta slatta. eða kannski ekki.
allavega..






Er búin að vera með þess lög nuna í veikindum mínum sérstaklega Home með westlife. Elska þetta lag. textarnir eru herna með að ofan ;)

Hafið þið pælt í því hvað lög og textar hafa mikil áhrif á manns sálarlíf og minningar. við örugglega hvert einasta lag sem til er í heiminum á eitthver minningu. Ég á mér alveg mín minningarlög bæði grátleg og brosleg ég fer alltaf að grenja yfir 2 lögum það bara bregt ekki textin, minningin á bakvið þau. ég veit ekki.








Já þetta er grátbrostlegt. minningarnar á bakið þetta.
En nóg komið með rugl um lög og minningar. ætla að koma mér í rúmið vinna á morgun.
Góða nótt. landsmenn nær og fjær





Muniði hversu heitir þeir voru?