fimmtudagur, 4. desember 2008

Lata Lata

Guten Abend.

Fyrir þá sem að ekki muna eftir mér þá er ég Sveinbjörg, bara svona láta ykkur vita.
Ég er alveg handónýtur bloggari. Það þarf mikið til svo að ég bloggi, samt kemur það bara allt í einu og í felstum tilvikum veit ég ekkert hvað ég á að blogga um.

eins og t.d núna þá er ég tóm. Alveg galtóm. Hrikalega er ég ekki að standa mig.
ekki taka mig til fyrirmyndar í bloggheiminum. Ef að þið viljið almennileg blogg þá fariði bara eikkað annað....

en já megið endilega koma með hugmyndir um blogg... vill fá hugmyndir! ef að þið viljið blogg frá mér þarf ég allaveg fimm orð og ég skal blogga um allar hugmyndir ykkar.

:)

Sveinbjörg Anna

laugardagur, 20. september 2008

Sumar --> Haust



Jæja, þá er sumarið búið! Já eða löngu búið. Er ekki alveg að standa í blogginu. Sagði eftir ljósanótt að ég ætlaði að segja frá sumrinu, en sú bloggfærsla hefur nú dregist aftur umm vegna anna í vinnu og skóla. Já þið lásuð rétt. Sveinbjörg Anna er byrjuð aftur í skóla. Ég legg stund á fjarnám frá Fjölbrautarskólanum í ármúla. Er í 2 áföngum Lan103 og Þýs 403. Það sem af er komið af vetrinum þessir 10 dagar. eru búnir að ganga rosalega vel.



~Sumarið~
~2008~


Sumarið var hreint æðislegt.


ég fór í sumarfrí frá vinnuni 14. júlí - 5 ágúst og á þeim dögum var margt brallað.


Ég byrjaði samt sumarið í Maí þegar að ég og ellen og sigurvin, skelltum okkur í sumarbústað í skorradal. mjög skemmtileg ferð til að þjóðstarta sumrinu.

Svo var bara unnið og notið veðurblíðunnar þar til 11. júlí.
þá var hoppað úr vinnuni og þá fór ég í Sumarbústaðinn hans afa með mömmu og pabba, árna og ömmu. kósýhelgi í faðmi fjölskyldunnar en aðaltilefnið var fjölskyldudagur Arna á Laugarvatni, og á Laugardagskvöldinu þá kom þórhallur og hans vinir og skemmtu gestum og gangandi.
Helgina eftir það var familíu hlegi aftur og þá fórum við norður og í þetta skipti -Árni Vigfús sem var í Vatnaskógi. Getum við aldrei verið heil fjölskylda saman? hehe... Helgin var fín í alla staði en á Akureyri þá voru Hjóladagar og svo skemmtilega vildi til að Elías var með Guðmund óskar og það var alveg æðislegt í Alla staði.
Verslunarmannahelgin 2008 stóð upp úr. Ég. Hrund og Svenni fórum á Akureyri og það var alveg stórskemmtileg helgi sem einkenndist af skemmtun út í eitt og svefnleysi. Vorum frá föstudegi til mánudags, kynntumst yndislegu fólki og skemmtum okkur hrikalega vel.
Á þriðjudeginum var byrjað að vinna eftir 3ja vikna sumarfrí...
en sumarið var þá aldeilis ekki búið.
Ó NEI!!
Það var skellt sér á Blómstrandi daga í hveragerði.
Menningarnótt
Ættamótið sem haldið var á Húsavík í tilefni 100. ára afmæli Afa þórhalls
helgina 29 - 31 ágúst. Æðisleg helgi. fórum í bátsferð, kirkjugarðinn og svo familíuskemmtun í Lækjarseli. Fór síðan með elíasi til akureyrar til þess að fara á skímó ball. Æðisleg helgi.
Ljósnótt lokar sumrinu, æðisleg ljósanótt, sem hefði mátt enda betur.
Mikið var um djamm líka í sumar, workað heldur betur tanið, guðný ragna fermdist, ófáar bíóferðir.
Endanleg niðurstaða á sumrinu er sú að Sumarið var Awsome!!!

mánudagur, 2. júní 2008

Dómur!

Manneskjan er eitt furðulegasta fyrirbærið.
Manneskjan er eitt stórt vandamál.
Manneskjan dæmir fólk og sér ekki að það sjálft hefur sömu vandamál af sömu tegund eða af bara allt annari tegund. Maður sér það ekki fyrr en manneskjan er farin frá manni hvað maður hefur dæmt hana mikið og endar svo með sömu vandamál á herðum sér. Ég er bara lifandi sönnun fyrir því hversu stórt vandamál manneskjan er. Ég dæmdi eina manneskju en tel það að ég hafi gert henni gott með því að dæma hana en stundum var það of mikið. Manneskjan vissi af því, því að allir í kringum hana sögðu það sama og ég sagði. Þeir sem að þekkja mig vita um hvað ég er að tala. Ég dæmdi þessa manneskju í gríð og erg ásamt öðru fólki. En aftur á móti hjálpaði ég henni rosalega mikið. vona ég. Maður dæmir manneskjuna um hluti sem núna eru að lenda á herðum mínum. Ég leit á þessa manneskju sem bestu vinkonu mína. og það er svo margt sem ég arf að segja, t.d biðja hana fyrirgefningar á því að dæma hana á hlutunum sem eru lentir á mínum herðum, ekki hennar vandamál heldur mín vandamál af sömu tegund, Nú er þessi manneskja farin og mig vantar svo að segja fyrirgefðu að ég hafi dæmt hana svona mikið. Ég veit að flestir sem ég þekki vilja gera það sama eða viljað hafa gert meira til þess að hjálpa henni.

-sveinbjörg-

fimmtudagur, 24. apríl 2008

Gamalt barnaefni....

Gleðilegt Sumar :) nú er bara að drífa sig að taka út suttbuxur og bol og skella sér út í góða veðrið en NEI. auðvitað er rok :/ og það á að vera komið sumar....

Jáh fór að spá í því þegar að ég vaknaði í morgun og kveikti á sjónvarpinu. Allt barnaefni er eitthvað japansk drasl. sem snýst n.b ekki um neitt annað en slagsmál, kappakstur, stelpuhyllingar og fl. er ekki farið að senda röng skilaboð í gegnum barnaefni.? Ég man þá tíð þegar að barnaefnið var fallegt hver man ekki efit ævintýrum úr erilborg, raggy dolls, bjössa og birnu, kærleiksbirnunum og Jimbó, svo eikkað sé nefnt. Muna ekki allir líka eftir honum kormáki, unganum sem var alltaf með eggjaskurnina á hausnum og bönönum í náttfötum.
var að skoða þetta flest inn á youtube just love it ;*
Kærleiksbirninir



[Raggy Dolls]
































þriðjudagur, 15. apríl 2008

Júhú

Long time no see segi ég nú bara. guð minn góður hvað ég nenni þessu ekki að vera eitthvað að blogga svona. Já. Það er margt og mikið búið að gerast á einum mánuði. Ég fór til Akureyrar og Páskana. ískírn hjá guttanum hjá Elíasi og hann fékk Nafnið Guðmundur Óskar. Gífurlega falleg nafn :). Svo fékk Elías að hafa hann á Laugardeginum á páskahelginni. Guðmundur óskar er svo mikið yndi ;*

mér finnst hann einum of mikið krútt ;**

Já. Annars er lífið búið að ganga sinn vanagang. Mamma og Pabbi skelltu sér til Köben um síðustu helgi svo að ég hafði það bara kósý heima.

Ég er enn á Leikskólanum einum of mikið stuð. Er ekki einum of gott að fá að leggja sig í vinnuni? Líka að fá ís :) Love it. þetta er bara smáatriði miðað við það sem maður upplifir á einum degi þarna á Vinagerði.

Já. Maður spáir nú líka svoldið í hlutunum þarna. t.d Hver fattaði eiginlega að fara að leika sér með sand? og búa til skóflur og fötur til þess að nota í sandinn?

Umhugsunarvert. En með þessum orðum segi ég nú bara sæl að sinni og gangið hægt um gleðinnar dyr.

(( Vá kjánahrollur :/ ))

-Sveinbjörg Anna-



mánudagur, 17. mars 2008

jah

Það að vinna á leikskóla er nú léttara sagt en gert, nú? því að þegar að vinna á leikskóla kostar það að maður þarf að syngja með körkkunum og nokkur af þessum lögum glimja í hausnum á manni frá því maður vaknar a morgnana og þangað til maður festir svefn. Smá svona textadæmi

5 litlir apar hoppa á dýnu
einn datt af og meiddi sig pínu
mamma kyssti á báttið og sagð' allt í fínu
en nú mega ekki fleiri apar hoppa á dýnu.....

4 litlir apar hoppa á dýnu........

já þetta er best :) haha.

svo er annað sem að fer bara ekki

gjuggíbú hvar ert þú?
nú sé ég ekki neitt
gjuggíbú þarn'ert þu!
sem brosir svona breitt


aðeins of heilaþvoandi

er ekki alveg til í að vera með bara lög á heilanum

er eikker með hugmynd af lagi sem er fíunt að fá á heilann

NEI! EKKI FÍLLINN HÚN NELLÝ!!!!

miðvikudagur, 27. febrúar 2008

...


Á móti Sól - ég er til
sóldögg - svört sól
Eurobandið - This is my life



SVO EINFALT ER ÞAÐ!

Svinbjörg is out :)